Saturday, April 10, 2010

Loser loser,double loser! As if! Whatever! Get the picture! Duh! Ok??

Að hanga í tölvunni er mesti tíma og heilaselluþjófur sem til er. Fyrir tveimur klukkutímum síðan settist ég fyrir framan tölvuna. Og hvað var planið? Jú kíkja á Facebook til að taka út perraskap dagsins. Athuga póstinn. Ekkert nema ruslpóstur sem bíður mér góð tilboð af stinningalyfjum. Verst að ég hef engin líffæri sem þarnast stinningar svo það náði ekki lengra. Renna svo hratt yfir hugleiðingar vinar míns Perez í borg englanna, æfa sænskuna hjá BlondinBellu og athuga hvaða nýju svörtu leggings jóna mjónan Elín Kling var að kaupa sér. Þetta á að taka u.þ.b. 10-12 mín, fer eftir því hvort P hafi eitthvað krassandi til að segja mér.

120 mín. síðar.
Hvað er ég að gera við lífið mitt? Almáttugur.
Og maður mætti að halda að ég myndi skoða eitthvað uppbyggilegt. Kannski kynna mér þetta þarna það sem Einstein uppgvötaði. Eða skoða eitthvað nám sem ég (ætti) gæti farið í. Farið inná howdo.com og reynt að komast að því hvernig ég eigi að hreinsa myglublett í einni af baðflísunum.
uselessinformation.org tók burt tvo klukkutíma úr minni ævi. Oh niðurdrepandi staðreynd

Það er bara ein leið til að redda þessu laugardagskvöldi.

Glórulaus? Klárlega!

Ég kann þessa mynd utan að. Þið sem skiljið mig, jújú þið skiljið þetta. Njótiði kvöldsins litlu kexin mín.
Ég og Cher ætlum að fara versla í Beverly Hills með litlu plast bakpokana okkar og með æðislega mikinn varablýant. Laaaater

4 comments:

  1. Snillingurinn minn, gott að þetta blogg bætist í netflóruna! :)

    Þú hefðir bara átt að melda þig með okkur í leit bíó í gær - við veltumst um af hlátri!!

    ReplyDelete
  2. as if!
    if she doesn't do the assignment I can't do mine!

    ..and so on

    ReplyDelete
  3. Ég panta Glórulaust kvöld með þér og okkar einu þegar ég mæti á klakann !! Pant Pant Pant xxxx

    ReplyDelete
  4. Ég fékk sting í hjartað við að lesa titillinn..

    Og kökk í hálsinn............ gotta love it!

    Aji þú skilur mig

    <3

    ReplyDelete