Friday, January 27, 2012

Til Stefáns.

Hæ þið öll.
(Þið eruð kannsi þrjú, en það er allt í lagi. Ég ætla ekki að gera lítið úr ykkur þó þið hafið ekkert betra að gera með lífið ykkar en að lesa þetta. Engin skömm í því, veriði stolt!)

Þetta er fyrir Stefán sem finnst að ég eigi ekki að sitja á sjálfri mér og leyfa engum að heyra hvað ég er sérleg smjattandi rugluð í hausnum. Ég geri mitt besta við að vera eins eðilega venjulega leiðinleg og ég mögulega get dagsdaglega. Sem þýðir að ég hlít að virka alveg hrikalega bæld manneskja, eins og rostungur sem er í dulagervi afgreiðslustúlku La Senza;
,, Get ég ekki aðstoðað??????!!!!"
Svo það er kannski bara best að ég spúi hér út öllu því sem kemst ekki í gegnum ritskoðunina mína, sem vinnur eftir sama fyrirkomulagi og ritskoðunarnefnd ákveðins kóreu lands sem er kennt við norður.
Ég hef þetta ekki lengra að sinni útaf þremur einföldum ástæðum.
1) Tölvan mín/Talvan mín/Völvan mín (ég mun ekki leiðrétta málvillur, stafsetningarvillur né staðreyndarvillur. Allar uppástungur um annað verða ignoraðar auk þess sem sá hinn sami Besservisser mun missa framtennurnar.) Talvan mín er orðin svo heit að ég er mögulega komin með 2. stigs brunasár í klofið. Það er kannski jákvætt, kannski neikvætt.
2) Ég þarf að pissa og mín pissublaðra er jafn stór og hjá smágerðum Chiváva hundi. Auk þess verð ég ofbeldisfull þegar mér er mál. Sönnurgögn fást hjá sambýlismanninum.
3) Ég ætla frekar að eyða tímanum í að horfa á Youtube myndbönd sem bera heitið: Funny cat video.
Bæj.

4 comments:

  1. Hæ ég heiti Hlöðver og ég elska bloggið þitt!! Hef verið að refresssa þessa síðu alveg síðan þú skrifaðir síðustu færslu og það er frekar langt síðan!! Nú hef ég hins vegar tekið gleði mína á ný!! Vúbbedíivúbbsenn!!
    Kv. Hlössi

    ReplyDelete
  2. Hæ Hlöðver! Takk fyrir þetta, bara gaman að þessu. Hafðu það sem allra best. Lífið er yndislegt!
    Kv. Bleikir fílar

    ReplyDelete
  3. Nei þú drepur mig og sjaldan hefur mér verið jafn skemmt yfir blöggfærslu með bleiku letri, jafnvel óháð lit letursins.

    Haltu áfram með uppteknum hætti og hagaðu þér eins og manneskja.

    1love

    ReplyDelete
  4. Ok LOL! Söknum þín hér á baróns!

    ReplyDelete