Tuesday, January 31, 2012

Eggjastokkar með stæla og sokkaleysi í ræktinni

Já. Sem sagt. Titillinn dregur daginn minn saman í eina setningu. Þetta eru tveir hlutir sem ég hata af mikill ákefð og ástríðu.
Byrjum á ákveðnum eggjastokk sem ég er í FÝLU út í. Okey okey, ég skil, þú þarft að skila af þér eggi. Það þarf að losna og fara í skemmtiskokk niður hálsinn á leg-gellunni minni. Fine. Það er þitt starf og ég er ekki að dæma. Við þurfum öll að borga reikninga, handrukkara, lýtaaðgerðir etc.
Það sem ég er ekki SÁTT VIÐ er að þessi eggjakunta sem fór í leghálsgöngutúr í dag ákvað að vera lúxustussa og berja mig að innan með einhverju sem hlítur að líkjast hafnarboltakylfu eða sleggju. Eða mjög stóru barni. Flenni barni gætu sumir sagt.
Og ég vara bara EKKI AÐ LÖVA ÞAÐ.
Það var bara ógeðslega vont. Ég óverdósaði á Paratabs, sofnaði og dreymdi martröð þar sem mamma mín seldi mig í hórdóm-og henni fannst það bara helvíti sneddí.
Ömó í einu orði.
Snúum okkur að seinni hluta þriðjudagsgeðvondsku minnar: Skólaust fólk í ræktinni.
Í fyrsta lagi: OJBARA!
Í öðru lagi: EF ÞÚ ÁTT EKKI SKÓ ÁTTU EKKI EFNI Á AÐ BORGA 4.974,- KR. Á MÁNUÐI Í LÍKAMSRÆKT. Do the math maðurfukker.
Í þriðja lagi: Ái! Hversu óþægilegt er að vera hamast á einhverju djöflans brennslutæki í 40 mínútur, alveg kófsveitt að reyna ekki að kafna-á táslunum!!
Í fjórða lagi: Það er BANNAÐ að vera skólaus. Og ert þú bara yfir það hafinn? Ert þú betri en allir aðrir og gerir bara það sem þú villt? (Hér er bannað að vitna í lagið Ég geri það sem ég vil með Skyttunum)
Í fimmta lagi: Ef þú ætlar að vera í fokkings ógeðis sokkum og trufla okkur hin með ógeðslegu fokkings sokkunum þínum þegar VIÐ sem förum eftir settum reglum og kurteisiviðmiðum erum að reyna einbeita okkur að betri sál í spengilegri líkama VERTU ÞÁ Í FLOTTUM SOKKUM RASSAHAUS! Ekki vera í upplituðum gráfölum, hnökruðum Intersport sokkum sem þú fékkst gefins þegar KR varð 100 ára. Það er fjallans 13 ár síðan!!
Oj þú þér herra minn! Oj þú þér!
Núna er það súkkulaði í sárabætur og plott gegn einum eggjastokk sem þið megið vorkenna. (múhaha!)

6 comments:

  1. oj tásusviti er ógeðslegur þar er ég sko hjartanlega sammála þér, hann er líka eitthvað miklu sveittari en annar sviti...og eiginlega verri lykt af tásusvitanum. væri þá ekki betra að mæta bara í hælaskónum í ræktina??

    vona að eggjastokkurinn og eggið þitt hætti að koma illa fram við leghálsinn þinn....

    Dúradúracell++

    ReplyDelete
  2. Það ætti að sekta fólk fyrir að vera skólaust í ræktinni. Ein uppástunga: að láta fólkið nota notuðu handklæðin í ræktinni til að þerra af sér svitan, sem er mjög líklega eins og að þurrka sér með dominos pizzu í framan.

    Mér finnst það sanngjarnt.

    ReplyDelete
  3. Láta það svo hlaupa í 50 mínútur á hlaupabrettinu OG NEYÐA það svo til að borða fjöldskyldu KFC máltíð með auka kokteilsósu og 4 stk. RISA SNICKERS í eftirrétt. Og hlaupa svo í aðrara 50 mínútur.

    ReplyDelete
  4. Tásusviti er mjög vanmetið fyrirbæri.

    Kv. Bössi

    ReplyDelete
  5. Hvaða svitaskrímsli er þessi Bössi? Ég bara spyr.

    ReplyDelete
  6. Nei sko ég DEY

    Kv. JenPez

    ReplyDelete