Wednesday, April 4, 2012

Hákarlinn sem fór í gegnum skáargat

Til eru hlutir sem fílarnir hræðast meira en heitan eldinn.

 Í fyrsta lagi eru þeir hrikalegir lofthræddir. Þeir standa helst ekki upp á stólum og sérstaklega ekki í stigum og obbossí! þegar þeir fóru til Nef Jork og fóru upp í stóru flenni bygginguna þá urðu þeir svo skelfingulostnir að þeir þurftu þrefaldan Long Island þegar niður var komið.
Blessunarlega jöfnuðu þeir sig fljótlega eftir það.

Í öðru lagi eru þeim brjálæðsilega illa við lagið úr þættinum X-files. Þeir fá lítinn hroll sem byrjar efst í kannski 2. hryggjarlið og svo seitlast hrollurinn niður eftir mænunni og er orðinn svo kröftugur þegar komið er að rófubeininu að fílunum verður bara illt í rassinum. Tvöföld óþægindi.
Að beygja hnéin er góð æfing
Í þriðja og lang seinasta lagi (þetta verður ekki lengri upptalning, engar áhyggjur) þá eru Litlir Bleikir Fílar, ADHD kisan og konu-uglan sem stendur á bakvið þetta ótrúlega, ofsalega, hræðilega, hrikalega, ömurlega, ofsalega, svakalega, svaðalega, brjálæðislega mjög hrædd við fæðingar.
Já nú koma fram allskonar góðar konur alveg snælduóðar yfir því að Litlir Bleikir dirfist til að segja slæmt orð um þá unaðslegu upplifun sem fæðingin er.
 Vissulega hefur enginn af okkur orðið vitni af alvöru fæðingu: true. 
Og enginn af okkur hefur orðið fyrir getnaði og gengið með barn og fætt það í heiminn: true again. 
Og að sjálfsögðu getum við ekki, þrátt fyrir að vera fríður hópur, alhæft annan eins atburð eins og fæðingu og munu aldrei geta gert það fyrr en við sitjum á þessum bekk með útglennta fæturnar og reynum að deyja ekki úr sársauka: true true trueness.

En...útaf því að við Litlir Bleikir Fílar erum rosalegir pælarar að þá höfum við lagst í ítarlegar rannsóknir á fæðingum og hvernig þetta gengur allt fyrir sig. Þeir horfðu meira að segja á vídjó af nokkrum aumingjans konum þar sem þær ýmist góluðu eða görguðu á meðan ekkert gerðist. Þetta virtist vera svo ótrúlega sárt og svo kom mynd af klobbanum og bara NADA! Hvað er málið með það? Hveru mikið svindl er það? Svo voru þær búnar að vera svona í kannski marga klukkutíma. Sumir í daga. Hvurs lags kjaftæði á þetta að vera? Á að bjóða mér, háttvirti ungfrúnni, upp á svona horbjóð? 

Almáttugur þetta byrjar ekki vel (nota bene er meðganga víst líka bara afskapalega mikið gubb í gubbi og svo er maður bara að springa. Litlir Bleikir Fílar löbbuðum með körfubolta framan á sér í klukkutíma og voru báðar lafmóðir) 
Nú svo söfnuðu fílarnir í sig kjarki til að horfa á eina fæðingu í heilli lengd (reyndar klippt til, þeir höfðu ekki níu klukkutíma til að sitja og horfa á þetta því miður) Þeir sáu eitthvað lítið komu út, toppurinn á hausnum og greyjið klobbinn alveg hættur að líta út eins og hann gerir vennjulega, blessuð litla buddan. Þá hugsuðu fílarnir með sér:.....,, já nú kemur einhver töng eða sogklukka eða einhver ýtir á takka og þá opnast hurð fyrir krakkann." Nei ekkert svoleiðis gerðist. Þetta litla hélt bara áfram að gægjast út.... ,,Hvað er að gerast?"..., hugsuðu fílarnir með sér. Hvernig kemur blessað krílið út? Og þá byrjaði ævintýrið svona 4realz
Buddan varð bara eins og haus í laginu og þetta litla ponsu sem getur varla höndlað túrtappa vennjulega, það eina sem fílarnir gátu hugsað um var:...
,, EN! EN! SKÓRINN PASSAR EKKI! HANN PASSAR EKKI! TIME OUT! TIME OUT!" 
HÆTTU AÐ TROLLA MIG! HÆTTESSU!

En þá virtist gerast eitthvað mjög blóðugt kraftaverk því það var bara eins og pjallan hafi snúið vörn í sókn og sagt:  HALLÓ BIÐSUR, ÞESSI BUDDA ER ONE SIZE FITS ALL MAÐURFUKKER! 
Hólímólímakkaróní úmbarassa úmbarassa úmbarassassassaaaaaaaa!..........og út kom bara lítill krumpaður sekkur. (það er að segja barnið, það var bara frekar geimverulegt) Svo grenjaði litli köggullinn geðveikislega mikið og konan grenjaði líka og áður en ADHD kisan vissi var hún byrjuð að hágráta og fílarnir klöppuðu bara , agndofa yfir konunni og litlu geimverunni og loks aðalstjörnunni sem var  the pjellz. Sú á hrós skilið. Nei við erum að meina það. Á tímabili leit það út fyrir að það væri verið að reyna að troða hákarli í gegnum skráargat, sem er tæknilega ómögulegt. 
Tom Cruise og Mission Impossible og nælon reipið hans mega bara fara út og éta gras því the budda  er nýja hetjan okkar. Við erum í ævinlegri skuld við allar þær konur sem koma öllum þessum spangólandi krumpukögglum í heiminn. Þið eruð bara vaðandi snillingar, allar sem ein.
Litlir Bleikir Fílar taka hatt sinn niður fyrir hverri þeirri konu sem gerir þetta. 
ADHD kisan tjillar með nýjum vin.

Litlir Bleikir Fílar kveðja í bili. Ofsalega kjútís í dag. Þeir biðja að heilsa ykkur og vona að þið eigið líka svona glimrandi miðvikudag. Blessí.



3 comments:

  1. 112 buddan tekur afhöttunina til sín þar sem hún hefur þurft að ganga í gegnum þetta. Og á meðan eigandi 112 buddunnar segir hughreystandi við fólkið sem er með barn "ussussuss, þetta er ekkert mál, enga stund að líða og svo gleymirðu sársaukanum strax og ert bara komin með ofsalega fallegt barn" þá hugsar buddan "HAHAHAHAHAHAHHAHA SÖKKER!!!!! Djöfull áttu þetta skilið fyrir að geta ekki notað getnaðarvarnir". 112 buddan er ekki góðhjörtuð. Alla vega ekki eftir fæðingu mini-112.

    ReplyDelete
  2. Bössi er alveg gáttaður eftir þennan lestur. Þessi fallega stund þar sem ung kona fæðir barn er skemmd í huga hans.

    ReplyDelete
  3. Dagga hér, ég þurfti sjúss í miðri lesningu!! takk fyrir pent.
    Dagga kúkaði út einum körfubolta hér ekki endur fyrir löngu og sagði öllum að það væri pís of cake, en það sem fylgdi ekki sögunni var: Dagga var á sneplunum, ein jóna ásamt flösku af rándýrum 40% djús og lillimann bara slædaði út... ohh good times :D

    ReplyDelete