Thursday, February 9, 2012

Ég drekk bara instant. Eins og hann afi minn.

HÆ HÆ HÆ HÆ HÆ HÆ HÆ HÆ HÆ HÆ HÆ HÆ....Æ HÆ!
Litlir Bleikir Fílar vöknuðu í morgunn, við erfiðar aðstæður eins og venjulega því allir vita að Pabbi Strangi elskar að gera morgunstundin sem hrikalegasta. Svo ADHD kisan fór hálf önug frammúr.
,, Í dag er fimmtudagur, TIL FÝLU" ooooooh hugsaði ADHD kisan og bleiku fílarnir andvörpuðu og potuðu í  svampkennt morgunkornið. Voðalega var þetta allt erfitt þarna í morgunn.
EN AF HVERJU ERU BLEIKIR FÍLAR SVONA ÓGEÐSLEGA HRESSIR OG ADHD KISAN ER SVO SPENNT AÐ HÚN ER NÆSTUM KOMIN Í HRING OG ORÐIN RÓLEG??
Eitt svar:.....instant kaffi.
Já, Litlir Bleikir Fílar eru endurrisnir úr fýlu og fýlu númer tvö og eru í TREMMAKASTI útaf því að þeir tóku til örþrifaráða og sturtuðu í sig instant kaffi. Það var vont og það var sterkt og það VIRKAR!
Jeij! Undirhökubroskallar á línuna :-))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))...) þetta var maginn sem fylgir á eftir undirhökunni.
Til að hress ykkur hin við úr þessari fýlu sem þið kallið lífið ykkar þá er hér brot úr þætti Tvíhöfða nokkurra sem Litlir Bleikir hafa ofsalegt dálæti á þó ADHD kisan hefur ekki enn gert upp hug sinn hvort hún sé skotin í Táningafræðaranum eða Snjalla Mongólítanum. Þetta er smá flækja sem hún er í. 
Reynið nú að rífa ykkur upp krakkar mínir, ekkert gaman að vera eiturhress lítill bleikur fíll og vera bara aleinn í sveiflu og rassatjútti á dansgólfinu. Það kallast diskóbömmer og VIÐ VILJUM EKKERT SVOLEIÐIS!

Fáið ykkur instant
Farið í bað
Smyrjið á ykkur smyrslum
Og puntið ykkur upp


Litlir Bleikir Fílar þakka fyrir áheyrn í dag (alla 4 einstaklingana sem lesa þetta blogg, samkvæmt blogspot er einn daglegur lesandi staðsettur í Úkraínu: Good Morning Kiev! This is Litlir Bleikir Fílar calling from Reykjavík. We give Norway twelve points-Nous donnons Norvége douze points.  )
Nebbaknús.

7 comments:

  1. Langar svo í instant kaffi.....og svo langar mig að hvísla allt sem ég segi. ÞAð gerir allt svo leyndardómsfullt. Hvísl hvísl hvísl

    ReplyDelete
  2. Neeeeei huuugh, kaffi?

    INSTANT kaffi?

    Gurl you best check yo'self befo' you wreck yo'self.

    Hollah

    JenPez

    ReplyDelete
    Replies
    1. Ekki þú rífa niður okkur og okkar instant kaffi.
      Oh no you din't!

      Delete
  3. Bössi drekkur instant og þykir það ofboðslega gott. Stundum setur hann púðurmjólk út í. Sælkeradrykkur!

    ReplyDelete
  4. Ætli það sé 112-arinn sem er staðsettur í Úkraínu?

    112 er asskoti langt í burtu...

    ReplyDelete
    Replies
    1. Ég myndi allavega ekki tíma í leigubíl þangað. Hversu mörg nýru þarft að selja í það 112-ari?

      Delete