Friday, February 24, 2012

Ekki segja fokk jú við mömmu

Í dag er föstudagur og það er bara eitt fyrir Litla Bleika Fíla að gera í þeim efnum, og það er deyfa sig með alkahóli og bíða uns þriðjudagur rennur upp. Ah þriðjudagar.
,,Hversu lengi má ég bíða....fram á þriðjudagskvöld, vó vó vó, fram á þriðjudagskvööööld!"
Eftirfarandi eru því valmöguleikar Lítilla Bleikra Fíla fyrir helgina:

Drunkz
Drunken Doughnut
JÁ HÆ DOMINOS! ÉG VIL FÁ 8 KASSA AF KANILGOTTI
Litlir Bleikir Fílar eru of uppteknir við að tengja sig í æð við Gray Goose og hafa ekki tíma til að gera eitthvað skemmtilegt blogg. Fljótlega munu þeir ekki einu sinni getað skrifað eðlilega. Og fljótlega hættir það að vera fyndið. 
Svo við látum eflaust heyra í okkur um helgina. Möglega með áfengiseitrun, möglega með tattú af fjólubláum dreka yfir mjóbakið sem við munum ekki eftir að hafa samþykkt eða bara í vesturbæjarlauginni af festa hárið okkar í niðurfallinu. Þetta kemur allt í ljós börnin góð....kemur allt í ljós.
Þangað til næst, eða á bráðmóttökunni.
BÆJ!

2 comments:

  1. Bössi er ávalt hrifinn af kanilgotti, en nýjast æðið skilst honum að sé súkkulaðigott. Þar sem maður getur valið milli þess að fá brúnan og hvítan glassúr!

    Á víst að vera veislumáltíð fyrir bragðlaukanna.

    ReplyDelete
  2. Ógeeeeeðslega góð færsla, really hit home.

    ReplyDelete