Friday, February 3, 2012

Partýkisa segir: Bank of fun



Tíminn líður hratt, á gervihnattaröld (HRAÐAR SÉRHVERN DAG, HRAÐAR SÉRHVERT KVÖÖLD!) Þið afsakið Eurovision möngólið mitt, það er löngu búið að vara ykkur við þessu.

Hinsvegar hef ég gripið til Gleðibankans til að fæla út annað lag úr höfði mínu sem hefur setið fast þar í marga marga marga daga. Ég hef hugleitt að skríða inn í hátalara og vonandi verða svo heppin að fá tinitus (fyrir ykkur sem eruð fáfróð þá er tinitus bágt í eyrunu og maður heyrir suð alla daga það sem eftir er af lífi....sssszzzzzzsssszzzz)
Vinningslagið sem hefur tekið sér bólfestu í heilanum mínum er hvorki meira né minna en jólalagið ,,Þú komst með jólin til mín" Kannski get ég fengið prest og sært út Bó og jólagestina hans alla: ÚT BÓ! ÚT MEÐ ÞIG OG ÞITT HAFURTASK! (þú ert velkominn aftur um jólin) EN ÚT MEÐ ÞIG NÚNA! FEBRÚAR ER EKKI JÓLALAGAVERTÍÐ!

Litlir Bleikir fílar hafa ákveðið að grípa til flöskunnar í þessu leiðinda Bó vs. Gleðibanka máli og vona þess af öllu hjarta að áfengi í bland við hjartaáfalls orkudrykki og morgunverðardjús muni á einhvern hátt fá þá til að líða betur. Við erum orðin örvæntingafull og EKKERT er brjóstumkennanlegra en örvæntingafullir litlir bleikir fílar og einn stór ADHD köttur.
Senn líkur þessu föstudagsmorgunsblöggi og mögulega má ekki eiga vona á öðru blögging fyrr en á sunnudaginn eða jafnvel mánudaginn. (það kemur samt örugglega blöggs á morgunn, þið vitið það alveg en ég myndi vilja halda að ég ætti líf, svo er samt ekki.)
Við kveðjum með skemmtilegir mynd af partý kisu. Upprunalega ætlaði ég að setja inn mynd af kisu með 3 bjórdósir á hausnum og trúið mér, hún var ekki sátt með þau mál enda drekkur kisi ekki bjór, aðeins sterkt áfengi með lítilli regnhlíf í.
En svo fannst þetta líka ótrúlega hryllilega ljóta málverk sem einhver aumingjans sálin málaði.
Ef þið voruð ekki búin að fá martröð hingað til þá GJÖRIÐISSVOVEL!

6 comments:

  1. Myndin kom bara hálf, en þið eruð heppin. Ef þið hefðuð séð hana í fullri stærð væruði örugglega nær því að missa vitið.
    PartýKisi.

    ReplyDelete
  2. Partýkisar eru ekki kisar sem eru mér að skapi.

    kv. Bössi

    ReplyDelete
  3. HEY! Ég málaði þessa mynd :'(

    ReplyDelete
  4. Ég vil svo bæta í umræðuna að ef þið skoðið Gleðibanka myndina vel þá má sjá að c-ið í ICY er eins og Pacman.
    HVERSU MIKIL SNILLD ER ÞAÐ??
    Eðall. Inn og út.

    ReplyDelete