Wednesday, February 29, 2012

Love Cats

ADHD kisan er ástfangnin. Þetta hefur verið að ágerjast til lengri tíma. Í raun nokkur ár. Má segja að þessi ást vaxi um 15, 24 cm á ári. Þetta kann að hljóma einkennilegt en þetta á sér mjög eðlilega útskýringu. Raunin er sú að ADHD kisan er ástfangin af högna nokkrum. Þetta er ekki hvaða högni sem er, heldur aðal högninn. Allir vita að ADHD kisan er mjög áhugasöm um hár, helst afskaplega sítt hár. Og hvern þekkið þið sem er högni og er sá síðhærðasti í bransanum?
Mjásingur
Þetta byrjaði allt saman fyrir mörgum mörgum árum þegar ADHD kisan fór á tónleika hjá Benna Hemm Hemm. Þar var Högninn og var með hár niður fyrir eyru. Það fannst ADHD kisunni heldur betur heillandi en þó var það ekki ást við fyrstu sýn því hárið var ekkert afskaplega sítt.
Sbr. mynd af Högna með hár niður að eyrum.
Of stutt fyrir ADHD kisuna.
Eins og áður kom fram vex hár um fimmtán komma tuttugufjóra sentímetra á ári (15,24). Og makkinn á þessum högna hefur aldeilis oxið og oxið og þar með hefur þessi hrifning ADHD kisunnar aukist og orðið að mjög djúpri ást. Næstum brjálæðisleg ofurvæntumþykja. ADHD kisuna dreymir um að högni sæki hana einn daginn á fjólublárri vespu með hár niður í götu. Auk þess finnst ADHD kisunni ofsalega skemmtilegt þegar Högni setur hárið upp í snúlla. Sbr. mynd af Högna með snúlla:
Snúlla Högni
Þessar tilfinnigar sem ADHD kisan ber til Högna nokkurs (í Hjaltalín krakkar ef þið eruð alveg dö og hafið ekki kveikt á útvarpi undanfarin fimm árin) endurspegla á engan hátt tilfinningar Lítilla Bleikra Díla né þessar snarbiluðu konu sem skrifar þetta blogg. Þau eiga sér öll sín einkaskot en þessi smáskot verða því miður ekki útlistuð eins og er, hér á þessum vettvangi....

Þetta er pistill í boði ADHD kisunnar. Hún vonar að Högni sjái þetta og passi sig svo að klippa ekki hárið því þá verður ADHD kisan skelfingulostin. Hvað gerir hún þá? Litlir Bleikir Fílar eru reyndar með varamann á línunni sem er tilbúinn til að hoppa inn í starfið hvenær sem er. Sá hinn sami maður er einnig með sítt hár og tapar fyrir hversu ofsalega fótógenískur hann er, myndavélin ELSKAR hann.
Fleginn og flottur.
Fabio er maður sem er ekki feiminn við mittisháar buxur og svo rokkar hann man-cleavage eins og enginn sé morgundagurinn. Litlir Bleikir Fílar eru handvissir um að Fabio og ADHD kisan yrðu afskaplega hamingjusamt par en ADHD kisan er enn ekki tilbúin að gefa Högna upp á bátinn. Þá væri hún svona glöð:
CAPS LOCK GLEÐI
Litlir Bleikir Fílar ætla ljúka þessum miðvikudegi með þessum orðum. Áfram ástin! Áfram ástin á milli manns með snúð í hárinu og ofvirks kattar með athyglisbrest. Allt fyrir ástina. <3 Lovz




5 comments:

  1. Oooooog það er ekki þurrt sæti í 112!

    GrrrrrrrrFabio!

    ReplyDelete
  2. Neeeeeej halló halló

    það þarf að þrífa og sprauta svona villiketti

    ReplyDelete
  3. Ertu að tala um að af-púnga ADHD kisuna? Þá væri hún ekki lengur ADHD kisan...þá væri hún slowmo kisan

    ReplyDelete
  4. Bössi er ekki hrifinn af karlmönnum með síðu hári en hann ber virðingu fyrir skoðunum annarra.

    ReplyDelete
  5. Nei þú drepur mig!! Jesús hvað þú ert fönní flepp kisi.

    Kv. snúlla Ralli

    P.s Hlössi biður að heilsa frá París

    ReplyDelete