Monday, February 20, 2012

Kanilknús

Já hæ!
Litlir Bleikir Fílar eru í miðjum próflestri þessa dagana. Sá sem getur útskýrt fyrir okkur kostnað framleiddra vara fær sleik og jarðaberjasvala í kaupbæti!
Þar sem að við erum ógeðslega leiðinleg þessa dagana (sjá klikkuðu konuna á Þjóðarbókhlöðunni, öll útötuð í jarðaberjasvala) þá verður bloggið ógeðslega leiðinlegt næstu daga.
Venjulega höfum við haldið áætlun og haft Misskining Vikunnar á mánudögum en það er eiginlega útaf því að á mánudögum er heilinn í okkur Kentucky Fried Chicken og við hvorki nennum að láta okkur detta eitthvað merkilegt í hug né getum við að hugsa sjálfstætt. Svo við erum með hóp af allskonar misskildum misskilningum uppraða í skjali í tölvunni sem heitir: MIZzUNDERSTÜD.
En þessi mánudagur er öðruvísi. Kannski útaf því að við eyddum helginni í að naga vasareikninn okkar og þess vegna er tæknilega séð bara miðvikudagur hjá okkur.
Það sem kom okkur lifandi út úr þessari helgi, fylltri af beiskum tárum og lokabirgðum fullunnra vara og útreikningum á óbeinum kostnaði er í raun eitt orð: kanill.

Af hverju kanill? spyrjið þið ykkur sjálf, enda eruði örugglega algjörlega heiladauð eftir helgina.
AF HVERJU EKKI KANILL?
Jú, útaf því að það eitt að horfa á stóra konu gleypa ausu fulla af kanil er mögulega númer átján á listanum yfir það fyndnasta sem Litlir Bleikir Fílar hafa séð.
HVERSU ÓGEÐSLEGA FYNDIÐ ER AÐ HORFA Á MANNESKJU KAFNA NÆSTUM VEGNA AUSU AF KANIL?.....
Augljós svar er:....ógeðslega fyndið.
Og ekki segja við ykkur sjálf: ,,Æi ekki vídeó....ég nenni ekki að horfa á vídeó núna....ég geri það seinna. Núna ætla ég að sauma út mynd af jesúbarninu í 3-D á veggteppi fyrir frænku mína sem býr í Helsinki og vantar eitthvað til að skreyta sjónvarpsholið sitt.
HORFÐU Á VÍDJÓIÐ! Þetta er kast í pínulitum kastala. KAST!

Litlir Bleikir Fílar eru ÁSTFANGNIR! ADHD kisan er að vísu pínu skelkuð en hún jafnar sig.
Nú verðum við að halda áfram að læra. Ef þið viljið hitta okkur erum við á Þjóðarbykkjunni, mögulega að missa vitið og mjög mögulega á deiti við Hvíthærða Hlöðukónginn í kaffiteríunni, borðandi Sloppy Joe og bara njóta hvors annars og tilverunnar. Njóta hvors annars og tilverunnar.

Veriði góð.
Kanilknús. HOLLAH!

p.s nennið að gubbast til að kommenta!! Ég veit alveg að þið eruð að lesa, ég get sko séð það inn á blogspot.com ef ég skrái mig inn, döööh. Stundum leyni kommenta ég sjálf bara til að láta mér líða betur því annars lítur það út eins og ég sé þrollingur og enginn sé að lesa þrollingabloggið mitt.
 EN ÞIÐ ERUÐ SKO ÓGEÐSLEGA MÖRG og ég er ÓGEÐSLEGA vinsæl og það eru 20.000.0000.000 manns sem lesa bloggið daglega. So por favor: SHOW SOME LOVE AND SHOUT OUT TO DEM PINKY ELEPHANTOS! (sorrý, varð smá alþjóðega þarna í endann.
Budduknús á kantinn.)
Follow my blog with Bloglovin

14 comments:

  1. Engin smá pressa að vera fyndinn í kommentakerfinu...

    ReplyDelete
    Replies
    1. Karen. Ef þú heitir það þá í alvörunnni. Ef þú myndir kalla þig eitthvað annað, vera undir leyninafi t.d Minkapelsinn, þá kæmi það þér á óvart hversu fyndin og vel grilluð þú gætir orðið!
      Prufaðu það!

      Ef Litlir Bleikir Fílar hétu venjulegu nafni eins og kannski; Margrét Anna, þá væri þetta blogg hvorki fyndið né fyndið.

      Delete
  2. Hvað er málið með kommentaþörfina? Sjúkleg þörf á viðurkenningu?

    Stubbaknús úr 112

    ReplyDelete
    Replies
    1. Ég hef bara ekki fengið nógu mikið af 112-kúrekanum undanfarið. :-(

      Delete
  3. Aaaaaafhverju hef ég ekki séð þessa prinsessu elsku áður á jútjúb?? Ég er í kasti, bókstaflegu kastala kasti!!! Þetta er svo fyndið að ég er hætt að vera veik!
    Takk fyrir það!
    Mjáw

    ReplyDelete
  4. Þessi kona og "kanilþrautin" er eitt það besta sem Bössi hefur orðið vitni af! Hvusr lags eindæmis vitleysa sem er til á þessum veraldarvefi.

    ReplyDelete
  5. ADHD kisan náði mér svo algjörlega með:
    "Og ekki segja við ykkur sjálf: ,,Æi ekki vídeó....ég nenni ekki að horfa á vídeó núna....ég geri það seinna. Núna ætla ég að sauma út mynd af jesúbarninu í 3-D á veggteppi fyrir frænku mína sem býr í Helsinki og vantar eitthvað til að skreyta sjónvarpsholið sitt."

    Ég ætlaði ekki að horfa. En gerði það bara út af þessu kommenti!! Helt barasta að þetta hafi vakið mig betur en 3 kaffibollar!

    Íris

    ReplyDelete
  6. ADHD kisan þakkar þér fyrir þetta innlegg í umræðuna Íris kær og óskar þér til hamingju með þessa nýtilkomnu orku þína. Ekki fékkstu þér ausu af kanil með?
    Nei við bara spyrjum.

    ReplyDelete
  7. Nú færðu þér svona teljara á bloggið svo að ALLIR geti séð hversu ÓGEÐSLEGA VINSÆL ÞÚ Í RAUN OG VERU ERT!

    Það gerði ég á sínum tíma og sjáðu mig í dag, on top.

    ReplyDelete
    Replies
    1. Þú er JenPez ON TOP OF IT ALL! Og við elskum það.

      Delete
    2. Ég fíla kanil..

      Hlössi

      Delete
  8. Ég bókstaflega græt af gleði. Hvað hélt hún eiginlega að myndi gerast, AUSA!?! af kanil?! Meina, wtf?! Insane in the membrane, insane in the brain!

    ReplyDelete