Wednesday, February 8, 2012

Litlir Bleikir Fílar hafa ekkert að segja í dag. Þeir eru andlega veðurtepptir (copyright-Tungufoss) Þeir eru gjörsamlega mállausir og hafa ekkert til málanna að leggja. Þeir ætla að leggjast undir gamalt bútasaumsteppi og vonast til með að koma með eitthvað betra á morgunn (eða eftir 29 mánuði)
Skiljanlega er þetta mjög erfitt fyrir ykkur. Til að láta ykkur líða enn verr og vonandi svo illa að þið gleymið því algjörlega hversu lufsukenndur þessi pistill er þá er hér mynd til sýnis af Celine nokkurrin Dion (sem Litlir Bleikir Fílar eiga ofsalega erfitt með) og tveimur ungabörn sem virðast vera vaxa út frá gömlu dömubindi. Það er þannig, það er augljóst og þið voruð alveg að hugsa það líka Litlir Bleikir sögðu það bara.
WHAT IS THIS I DON'T EVEN.
Svo í þokkabót stendur Kraftaverk á myndinni. Hversu mikið flogaveikiskast er það? Þetta er svo ljótt og hallærislegt og hrikalega bara ljótt!! (ég veit ég var að segja það, segi það bara aftur) HVERSU LJÓTT! Nei Litlir Bleikir Fílar GETA ekki svona. Ekki bara þola þeir alls ekki Celine Dion, þá þola þeir mjög illa ungabörn og sérstaklega sofandi ungabörn. (Þeir eru hræddir við þau; þau eru óútreiknaleg og hættan á að fá líkamsvessa framan í sig frá þeim er bara alltof há!)

Nú eru Litlir Bleikir hættir, ADHD kisan er að fá magasár yfir þessu-búið að nefna þessa konu (Dion) of oft á nafn í dag. Of oft!

Litlir Bleikir Fílar kveðja því að sinni. Koma vonandi hressari inn á morgunn. Mjög líklega ekki. Mjög líklega verður langar pistill um tívolí, Jersey Shore eða einhverskonar Varablíantsumræða. Kemur í ljós.

Bless í dag. Bless.
Já hoppa þú bara Celine mín. Hoppa þú bara.

4 comments:

  1. Nú er Bössi hlessa. Celine Dion hefur ávalt átt sérstakan sess í hjarta hans. LBF að valda honum miklum vonbrigðum.

    ReplyDelete
  2. mín persóna er frekar ósátt við það að Litlu Bleiku Fílarnir ætli ekki að halda uppi fjörinu á morgun, hvað er nú?

    ReplyDelete
  3. Af hverju elskar hún bara annað barnið sitt? og hvernig getur maður fengið svona grænan hárlit fyrir börn?

    Svar óskast...

    Jóna (Witness The Fitness)

    ReplyDelete
  4. Celine....

    HÚN OG HENNAR PERSÓNA

    JenPez

    ReplyDelete