Tuesday, February 28, 2012

Þegar Litlir Bleikir Fílar urðu krítískir

Litlir Bleikir Fílar eru greinilega á túr þessa vikuna (fara fílar á túr?) því þeir eru bara hneykslaðir og hneysklaðir. Þeir eru búnir að afgreiða fegurðarsamkeppnir barna og vilja helst ekki fara tilbaka í þá vitleysu. Þeir voru nú alveg tilbúnir til að afgreiða það mál. Svo eru þeir á sínum dagleg netrúnti (já við netfíklarnir köllum þetta netrúnt.....sure....átta klukkutíma langur rúntur....hólísmókes!) 
Og auðvitað kíkja Litlir Bleikir inná The Daily Mail. But of course!
 Og þar er nú Vitleysan sjálf aldeilis með skráð lögheimili! Drullubullið sem er inni á þeirri síðu getur verið alveg stórskemmtilegt og á DM (við skammstöfum eins og gamlir vinir) heiðurinn af mörgum af þeim stórkostlegustu kjánaprikum sem Litlir Bleikir Fílar þekkja og elska, eins og til dæmis TOWIE (The only way is Essex, krakkar) og svo er ofsalega þægilegt að fylgjast með Fræga Fólkinu þarna inná, DM hjálpar okkur til dæmis að fylgjast með Brad Pitt kaupa klósettpappír og Justin Bieber að snýta sér. Mikilvægt stöff.
En stundum, þá detta Litlir Bleikir Fílar í ægilegt ástand og alveg (óvart) fara að horfa á DM með gagnrýnisgleraugunum sínum: 
What is this I don't even
Þegar Litlir Bleikir Fílar eru á túrsa OG með gleraugun þá verða þeir æðislega móðgaðir yfir öllum sköpuðum hlutum. Í dag var það þessi fyrirsögn sem stillti túrbræðið alveg í botn :


'I'm back in my 13-year-old daughter's jeans!' Mel B reaches goal weight SIX MONTHS after birth of third child

Sko. Byrjum á byrjuninni. 
 Mel B er samkvæmt Wikipedia (það má víst vitna í Wikipedia í Háskóla Íslands! Víst! Víst má það!) heitir í alvörunni Melanie Brown og er þrjátíuogsex ára. Hún á þrjú börn og er nýbúin að fæða þetta nýjasta. Alveg splúnkunýtt út úr vagínunni. Eða nokkurnveginn. Og auðvitað var kellingin ekki rétt búin að skola barninu út úr sér að hún hljóp eins og fætur toguðu í ræktina og byrjaði á lengsta djús-kúr síðan Booztbarinn opnaði í Kringlunni. Það er sko langur djús-kúr get ég sagt ykkur. Og viti menn, eftir margra mánaða hungursneyð og þrotlausar Sexý Spinning æfingar þá kemst hún Mel B (getur fullorðið fólk ekki kallað sig eðlilegum nöfnum?) loksins aftur í gallabuxur af dóttir sinni. Sem er þrettán ára. Og hún kemst ,,aftur" í þær. DAFUQ? 
Þýðir það að hún notar sömu stærð af buxum og dóttir sín, sem samkvæmt myndum er ekkert óeðlilega stórgert þrettán ára barn, eða notar hún buxur af sínum eigin krakka? 
Nota þær buxur saman? Waz da fück ist das?
 Ef mamma mín hefði, á gamals aldri, troðið sér í einhverju hégóma fávitakasti í gallabuxurnar mínar þegar ég var 13 ára hefði ég aldrei orðið 14 ára því ég hefði bara kvatt lífið og sturtað mér niður klósettið. (Og ekki þið fara í barnalandspeysurnar ykkar og segja: ég og mamma mín bla bla) Þetta er ekki eðlilegt. Og vitið hvað er ekki eðlilegt? Að þessi kona sé að auglýsa það um borg og bæi að hún komist í buxur af þrettán ára gamalli dóttur sinni. Ok, þú ert hallæriskvendi og þannig er nú bara það. Ekkert við því leiðindamáli að gera. En hvað ertu líka að gera? Þú ert að segja dóttir þinni, ásamt öllum hinum í heiminum, að dóttir þín má ekki fitna um eitt gramm (allir vita að ef maður fitnar um gramm kemst maður ekki í gallabuxurnar sínar-TRUE STORY) Og hversu ömurlegt er það? Hvað ef þessi stelpa verður fullorðin og kemst því miður ekki í gallabuxur ætlaðar börnum og hvað þá? Haldiði að hún muni taka því vel? Er það? Nei, það verður ömurlegt. Henni mun líða svo illa. Hvurs lags óþarfa drullans pressa er það? Bara útaf því að Mel B er svo fáránlega sjálfhverf og athyglissjúk kellingargæs og þarf endilega að troða sér í barnabuxur bara til að komast á kortið. Til að komast inn á Daily Mail. Og til þess að vera viss um það að þessar þrjár dætur hennar munu örugglega uppskera brotna og brenglaða sjálfsmynd. Plús lélegt sjálfstraust. Plús gallabuxnakomplexa. Plús þörf fyrir athygli af öllum röngum ástæðum. Plús bara allt leiðinlegt sem fylgir því að hafa lélega sjálfsmynd. Sem sökkar (feitan)
Snilld! Flott hjá þér Mel B! Alveg það besta sem þú hefur gert síðan Spice Girls: The movie

Eitt klapp fyrir þér. (og einn miðjufingur líka....)

Litlir Bleikir Fílar nenna ekki meiru röfli í dag en vildu endilega að þið vissuð af þessari staðreynd og hún er sú að ef þið komist ekki í barnagallabuxur strax eftir meðgöngu þá eru þið ekki jafn æðislega djúsí manneskjur og Mel B. True story. (........NOT)


Móðir-Kona-Meyja.....sure.

8 comments:

  1. Ég er í sjokki. Þessi kellingargæs. What is this I don't even.

    Nei, nú er ég reið.

    Kv,
    LIL

    ReplyDelete
  2. Ég alltaf með Victoriu Adams (nú Beckham). Ég veðjaði klárlega á réttan hest. Því hún kæmist nefnilega pottþétt í gallabuxur af hennar dóttur sinni -- sem er svona hva? 2ja? ;-)

    ReplyDelete
    Replies
    1. Helld að dóttir hennar séu 4 mánaða....geri aðrir betur. Hún hlítur að vera svo stolt.

      Delete
  3. Aðeins 9 stuttum mánuðum eftir barnsburð hef ég náð að troða mér í joggingbuxur barnsins míns.

    JebbJebb, náði að troða þeim yfir andlitið á mér og BÁÐAR KINNARNAR KOMUST FYRIR !!!!

    112 ER SVO FEITT MEÐ ÞETTA!

    ReplyDelete
  4. Bössi er fylgjandi því að foreldrar komist í föt barna sinna. Þetta sparar heilmikinn pening.

    ReplyDelete
    Replies
    1. Eru þá börnin nakin? Eða foreldrarnir? Jedúdda jeremías, ég veit ekki hvert þú ert að fara með þetta mál. Á Kaffi París með þig.

      Delete
  5. Ég elska ELSKA litla bleika fíla á túr með gagnrýnisgleraugu.

    En ég elska ekki MelB. Hún er asni.

    ReplyDelete