Monday, February 6, 2012

Misskilngur vikunnar: numero uno

Litlir Bleikir Fílar gera sig út fyrir að dæma ekki. Þeir hafa lesið friðarsáttamála Sameinuðu Þjóðanna, þeir tóku fermingarfyrirlestrana mjög alvarlega og þeir sleppa reglulega friðardúfum af efra bílstæðinu hjá Kringlunni. Í stuttu máli: LBF og ADHD kisan vilja vera vinir allra og allir (ættu að) vilja vera vinir þeirra. Þess vegna finnst okkur svo leiðinlegt þegar verið er að taka ákveðnar manneskjur fyrir, stilla þeim upp við vegg og segja: ,,ÞÚ OG ÞÍN PERSÓNA...!" Þetta þykir Litlum Bleikum mjög sorglegt mál og finna mikið til með þessum útskúfuðu einstaklingum. Þess vegna hafa Litlir Bleikir Fílar ákveðið að byrja með Misskilning Vikunnar, líklegast á Bugunardeginum góða eða Mánudögum.
 Þetta mun vera langur, ítarlegur og þverfaglegur pistill um einhvern aðila eða hóp eða samtök eða þjóðflokk eða félag manna sem hafa á einhvern hátt verið algjörlega blússandi misskilinn af hinum meðal manni og konu, og ætlum við að taka þessa misskilningsengla og gefa þeim vængi og leyfa þeim að flúgja um áhyggjulaus eins og ljósbleik fiðrildi þakin í glimmeri. Fallegt, finnst ykkur ekki? Já svona erum við yndisleg Bleiku Fílarnir og ADHD kisan.
Svo nú komum við að Misskilningi Vikunnar og er frumburðurinn engin önnur en Coco Austin, nútímakona sem mjög mögulega er María Mey endurrisin til að leyfa okkur að njóta hennar kærleika og hjartahlýju (ásamt öðru...)
 Hér er Coco í öllu sínu veldi, að rækta líkama og sál okkur öllum til ómældrar gleði. Þetta er kona sem  hugsar  um sjálfa sig OG aðra. Hún passa upp á líkamlegu heilsuna sína og á sama tíma heldur uppi geðheilsu Lítilla Bleikra Fíla. Svo sakar ekki að hún er líka aðdáandi bleika litsins; þá börðu bara Litlir Bleikir í borðið og sögðu: ,,NEI HEYRÐU MIG NÚ-ÞESSA KONU ELSKUM VIÐ!"
Coco og kameltáin hennar sem fylgir henni ávallt. Sætt.
And the rest is history.
Coco í miðri hnébeygju.
Litlir Bleikir ætla ekki að hafa þetta lengra í dag þar sem að lestur mælist minnstur á mánudögum. Það þykir Litlum Bleikum ekki nógu gott en þeir verða þó að viðurkenna að þeir eru heldur ekki þeir hressustu í dag, ónei. Þeir gætu vel hugsað sér að sitja í spennitreyju og hlusta aftur og aftur og aftur á lagið I'm Blue badadidadada með stórsveitinni Eiffel 65 heldur en að gera það sem þeir ættu í raun að vera gera. Meira að segja ADHD kisan er fremur slök. Svo við segjum bara BÆJ! og SJÁUMST Á MORGUNN GRÍSLINGAR. (bless)
P.S Litlir Bleikir Fílar eru greinilega sjónvarpssjúkir því Coco og maðurinn hennar Ice-T eru með ,,raunveruleikaþætti" um sig og sínar persónur á fréttastöðunni E! (það eru VÍST sýndar fréttir þar!) Þar má fylgjast með þeim í ýmsum ævintýrum og ætla Litlir Bleikir Fílar og ADHD kisan að mæla ÆRLEGA með þessum þáttum. Þeir eru ástarskot beint í hjartað. One love. <3

7 comments:

  1. vildi óska að ég væri með þessar línur sem coco er með, hvílík dásemd sem þessi kona er og augnakonfekt, ég segi ekki meira.
    þekkir þú ekki einhverja plast lækna sem vilja dæla sílikoni í litla netta rassinn minn og bústa hann upp?

    ReplyDelete
  2. Ég næ mér reglulega í allskyns þætti af fréttastöðinni E. Akkurat núna er niðurhalsmappan mín full af nýju Ice loves Coco, Kendra, Keeping up with the Kardashians, Khloe and Lamar, Kourtney and Kim take New York, Girls of the Playboy Mansion og Holly's World.

    Fólkið í 112 er alveg jafn veraldarvant og Litlu bleiku fílarnir!

    ReplyDelete
    Replies
    1. örugglega veraldarvanasti 112-ari sem nokkurntímann hefur verið uppi. Komdu niður í bæ 112-ari...komdu...

      Delete
  3. Coco er án efa hin fullkomni kvenmaður. Bössi vildi að konan hans væri með svona rass.

    kv. Bössi

    ReplyDelete
  4. CoCo mun leiða friðarviðræður í Palestínu, fyrst smekklegra kvenna. Það veit ég vel, ójá.

    JenPez

    ReplyDelete